Persónuvernd / síðast uppfært 20. ágúst 2026
Persónuvernd
í skýru máli.
Hér kemur fram hvaða upplýsingar Vefsíðugerð.is vinnur þegar þú hefur samband, hvers vegna þær eru notaðar og hvaða réttindi þú hefur.
Ábyrgðaraðili
AXA ehf. er fyrirtækið á bak við Vefsíðugerð.is og ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér.
Hvaða upplýsingar vinnum við?
Þegar þú sendir fyrirspurn vinnum við þær upplýsingar sem þú slærð inn: nafn, netfang, fyrirtæki ef það er gefið upp, tegund verkefnis og skilaboð. Vefþjónn getur einnig skráð tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu, tíma beiðni og gerð vafra, vegna öryggis og bilanagreiningar.
Tilgangur og heimild
Upplýsingarnar eru notaðar til að svara fyrirspurn, meta verkefni, undirbúa tilboð eða önnur skref sem þú óskar eftir. Vinnslan byggist eftir atvikum á ráðstöfunum að þinni beiðni áður en samningur er gerður og lögmætum hagsmunum AXA ehf. af því að svara erindum, reka örugga þjónustu og halda utan um samskipti.
Miðlun og vinnsluaðilar
Við seljum ekki persónuupplýsingar. Hýsingar- og tölvupóstþjónustur geta unnið upplýsingar fyrir okkar hönd að því marki sem þarf til að hýsa vefinn og koma erindum til skila. Upplýsingum kann einnig að vera miðlað ef lög krefjast þess.
Varðveisla
Fyrirspurn sem leiðir ekki til viðskipta er almennt varðveitt í allt að 12 mánuði frá síðustu samskiptum og síðan eytt, nema málefnaleg ástæða eða lagaskylda krefjist annars. Ef til viðskipta kemur geta samskipti og gögn verið varðveitt lengur samkvæmt samningi og gildandi lagaskyldum. Tæknileg logg eru varðveitt aðeins eins lengi og nauðsynlegt er vegna öryggis og bilanagreiningar.
Vafrakökur og mælingar
Vefsíðugerð.is notar ekki greiningar- eða markaðskökur í núverandi uppsetningu og birtir hvorki auglýsingar né framkvæmir persónusnið. Ef slík virkni verður tekin upp síðar verður þessi stefna uppfærð og samþykkis aflað þegar þess er krafist.
Þín réttindi
Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu og andmælt vinnslu þegar það á við. Réttur til flutnings gagna getur einnig átt við. Sendu erindi á info@vefsidugerd.is. Þú átt jafnframt rétt á að senda kvörtun til Persónuverndar.
Öryggi og breytingar
Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda upplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingu eða tapi. Stefnan kann að breytast ef þjónustan eða lagakröfur breytast. Nýjasta útgáfa er ávallt birt á þessari síðu.